Aðildarfélög

Aðildarfélög SHA eru sviðs- og deildarfélög Háskólans á Akureyri. Starfsemi þeirra og hlutverk hafa þróast í gegnum árin og tekið breytingum samhliða starfsemi og hlutverki SHA. Aðildarfélögin eru ásjö. 

  • Data, félag tölvunarfræðinema, var stofnað árið 2016.  

  • Eir, félag heilbrigðisnema, var stofnað árið 1990. Nafn félagsins er fengið úr norrænni goðafræði.

  • Kumpáni, félag hug- og félagsvísindanema, var stofnað árið 2004, eftir að nemendur félagsvísindadeildar höfðu verið eitt ár félagsmenn í Magister.

  • Magister, félag kennaranema, var stofnað árið 1993 og varð því fjórða deildarfélagið sem stofnað var við HA.

  • Reki, félag viðskiptafræðinema, hét áður félag rekstrardeildarnema og dregur nafn sitt af því. Félagið var stofnað árið 1990. Á tímabili starfræktu meistaranemar í viðskiptafræðum undirfélag Reka sem nefndist A-meistari. Starfsemi þess félags var mjög lítil og starfstími þess stuttur.

  • Stafnbúi, félag nema í auðlindafræðum var stofnað árið 1990, um leið og kennsla hófst í sjávarútvegsfræði við HA.

  • Þemis, félag laganema, var stofnað árið 2005 en var þá undirfélag Kumpána. Eftir að hafa verið eitt ár í Magister og undir Kumpána í fimm ár klufu laganemar sig algerlega frá Kumpána í mars 2009 og hefur Þemis starfað óháð öðrum deildarfélögum síðan.