Starfsáætlun SHA

Stúdentaráð SHA samþykkir sérstaka starfsáætlun fyrir hvert starfsár.

Starfsáætlunin er leiðbeinandi plagg sem veitir yfirsýn yfir helstu verkefni, áherslur og viðburði félagsins, auk þess að skýra hlutverk SHA sem hagsmunafélags stúdenta við Háskólann á Akureyri. Í henni er fjallað um almenna starfsemi félagsins, hagsmunagæslu, nefndir og ráð, gæðastarf, alþjóðastarf, jafnréttis- og umhverfismál, markaðs- og kynningarstarf og helstu félags- og menningarviðburði ársins.

Tilgangurinn er að gera starf félagsins skýrara, aðgengilegra og markvissara fyrir stúdenta, fulltrúa og samstarfsaðila, um leið og svigrúm er fyrir ný verkefni og málefni sem kunna að koma upp á starfsárinu.

Hér má finna starfsáætlun SHA fyrir starfsárið 2026–2027.