Á Íslandi er til umræðu hvort eigi að heimila háskólum að rukka skólagjöld ef nemendur eru ríkisborgarar frá löndum utan EES. Þeir nemendur myndu gætu þá þurft að greiða allt að 4 milljónum íslenskra króna fyrir skólaárið til að stunda háskólanám hérlendis. Þar sem þetta frumvarp er ekki gengið í gegn er óljóst að segja hvenær eða hvort þetta muni taka gildi. Þetta frumvarp myndi þá ekki hafa áhrif á nemendur frá EES-ríkjum og myndu þeir halda áfram að greiða 100.000 króna skrásetningargjald fyrir hvert skólaár.
Stúdentafélagið hefur sent inn umsögn varðandi málið og má lesa hana hér. Öll erindi í 317. máli: opinberir háskólar | Erindi | Alþingi
Stúdentafélagið fylgist með málinu og mun uppfæra síðuna um leið og eitthvað gerist. Ef vakna spurningar eða vangaveltur er hægt að heyra í framkvæmdastjórn stúdentaráðs í gegnum sha@unak.is.
Áhugavert lesefni:
Greinagerð frumvarpsins: 443/157 stjórnarfrumvarp: opinberir háskólar | Þingtíðindi | Alþingi+
Grein um reynslu Svía á málinu: International student tuition fees: reflections from Sweden
Rannsókn á afleiðingum í Finnlandi: If You Charge Them, Will They Come? The Effect of Levying Tuition Fees on International Students | Research in Higher Education | Springer Nature Link