Upplýsingar um skrásetningargjöld

Gjaldið hækkað 

Skrásetningargjald við Háskólann á Akureyri var hækkað úr 75.000 kr. upp í 100.000 kr í febrúar 2026. 

Þetta þýðir að í byrjun skólaárs þarft þú að borga 100.000 kr. en ef þú hefur nám á vorönn þarftu að borga 75.000 kr. Áður voru það 75.000 kr. í byrjun skólaárs og 50.000 kr. ef nám var hafið á vorönn. 

Hvað er skrásetningargjald? 

Skrásetningargjald er gjald sem háskólum er samkvæmt lögum heimilt að innheimta til að standa straum af kostnaði við alla þjónustu við nemendur, nema kennslu. 


Öryrkjar og skrásetningargjald

Á unak.is undir Námið -> Skólagjöld segir: 

„ Þeir sem hafa 75% örorkumat fá 50% skrásetningargjalds endurgreitt gegn framvísun á staðfestingu á örorkumati til nemendaskrár. Greiða þarf fullt skrásetningargjald áður en endurgreiðslu er óskað.” 

Þetta þýðir að þau sem eru búin að greiða skrásetningargjald og hafa 75% örorkumat geta sent tölvupóst á nemendaskrá og óskað eftir að fá 50% skrásetningargjaldsins endurgreidd. Í póstinum þarf að koma fram: 

- Kennitalan þín 
- Númer reikningsins sem þú vilt fá endurgreiðsluna millifærða inn á 
- Staðfestingu á örorkumati (t.d. skjáskot af örorkuskírteini í ísland.is appinu) 

Dæmi um Tölvupóst 

Subject: Skrásetningargjald - Örorka 

Góðan dag, 
Ég óska eftir að fá 50% skrásetningargjalds endurgreitt vegna örorkumats. 
Kt: xxxxxx-xxxx 
Reikningsnúmer: xxx-xx-xxxxxx