SHA býður öllum stúdentum í skemmtilegan og frjálslegan íþróttahitting í höllinni og í þetta skiptið ætlum við að prófa klassíkina: Kýló!
Kýló er frábær hópleikur sem sameinar hreyfingu, keppni og góða stemningu. Þú þarft ekki að vera í toppformi eða hafa spilað áður enda snýst þetta fyrst og fremst um að hafa gaman, kynnast nýju fólki og hreyfa sig á léttan og skemmtilegan hátt.
Hvort sem þú kemur með eða án félaga, með vinahópnum eða vilt bara brjóta upp daginn með smá hreyfingu þá er þetta fullkomið tækifæri. Við sjáum um að skapa afslappað og jákvætt andrúmsloft þar sem öll eru velkomin!
Taktu með þér íþróttaskó, góða skapið og komdu og prófaðu Kýló með okkur – við lofum góðri stemningu, opnu andrúmslofti og smá keppnisanda!