Hið margrómaða Sprellmót SHA fer fram þann 18. september 2026 í umsjón viðburðanefndar SHA.
Sprellmótið er einn líflegasti og skemmtilegasti viðburður ársins þar sem aðildarfélög SHA keppa sín á milli í fjölbreyttum þrautum víðs vegar um bæinn. Liðin mæta í búningum, stemningin verður í algleymingi og keppnisskapið blandast húmor, samstöðu og háskólagleði.
Markmiðið er ekki aðeins að vinna hinn eftirsótta Sprellmótsbikar, heldur líka að skapa ógleymanlega upplifun, efla tengsl milli stúdenta og koma félagslífinu almennilega af stað.
Sprellmótið er fullkomið tækifæri til að kynnast nýju fólki, taka þátt í starfi aðildarfélaganna og upplifa HA-stemninguna eins og hún gerist best.
Taktu þátt, mættu í búningi og vertu með í fjörinu!