Aðalfundur 2018

Stúdentaráð Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri boðar til aðalfundar Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri 22. febrúar 2018 klukkan 17:30 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

Dagskrá aðalfundar:
1. Fundur settur
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á liðnu ári
4. Lagabreytingar
5. Kosningar í embætti innan félagsins
6. Aðrar kosningar
7. Önnur mál
8. Fundi slitið

Samkvæmt 19. gr. laga FSHA er kosið í embætti framkvæmdastjórnar rafrænt og hafa allir félagsmenn FSHA atkvæðisrétt. Aðrar kosningar fara fram á aðalfundi félagsins og hafa fundargestir atkvæðisrétt.

Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi:

Framkvæmdastjórn FSHA:
Formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.
Varaformaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.
Fjármálastjóri Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.

Formenn fastanefnda:
Formaður Alþjóðanefndar. 
Formaður Kynningarnefndar. 
Formaður Félags- og menningarlífsnefndar. 

Háskólaráð:
Einn fulltrúi til háskólaráðs Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.

Önnur embætti:
Skoðunarmaður reikninga Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri
Einn fulltrúi í stjórn Félagsstofnun stúdenta á Akureyri til eins árs og einn til vara, einn fulltrúa í stjórn Félagsstofnun stúdenta á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.
Tveir fulltrúar í jafnréttisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tveir til vara.
Einn fulltrúi í gæðaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.
Einn fulltrúi í vísindaráð Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Þrír fulltrúar í umhverfisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og þrír til vara.
Sex fulltrúar á háskólafund Háskólans á Akureyri til eins árs og sex til vara.
Einn fulltrúi í kannanateymiHáskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.  
Einn fulltrúi af meistarastigi og einn til vara í starfshóp um doktorsnám HA. 
Einn fulltrúi af hverju fræðasviði í starfshóp um samkennslu á milli fræðasviða (hópurinn heldur utan um skipulagningu aðferðafræðinámskeiðanna sem eru samkennd á öllum fræðasviðum).  

Tillögum um lagabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á fsha@fsha.is

Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á kjorstjorn@fsha.is

Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf innan félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, www.fsha.is