Aðalfundur FSHA

Stúdentaráð Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri boðar til aðalfundar Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri 19. febrúar 2016 kl. 17 í Hátíðarsal skólans. 

Dagskrá aðalfundar:

  1. Fundur settur
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á yfirstöðnu starfsári
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning í embætti innan félagsins
  6. Aðrar kosningar
  7. Önnur mál

Tillögum um lagabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólahringum fyrir upphaf aðalfundar á fsha@fsha.is

Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar minnst tveimur sólahringum fyrir upphaf aðalfundar á kjorstorn@fsha.is

Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf innan félagsins má nálgast á heimasíðu félagsins, www.fsha.is

Allir félagsmenn sem áhuga hafa á félagsmálum og hagsmunum stúdenta eru hvattir til að gefa kost á sér og mæta á aðalfund. 

Stúdentaráð Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri.