Kæru stúdentar,
Á mánudaginn kl. 17:00 fer fram aðalfundur Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Klukkan 17:00 í dag, 13. mars, lokaði kjörstjórn fyrir framboð í störf Stúdentafélags Háskólans á Akureyri, nefndir og ráð HA.
Samkvæmt 25. gr. samþykkta SHA:
„Kosið skal í embætti framkvæmdastjórnar í sérstakri kosningu. Berist aðeins eitt framboð í eitthvert embætti framkvæmdastjórnar þarf viðkomandi frambjóðandi að hljóta að minnsta kosti 50% atkvæða. Takist það ekki skal opna fyrir framboð á aðalfundi.“
Kosning í embætti framkvæmdastjórnar SHA — forseta, hagsmunafulltrúa, rekstrarstjóra, viðburðastjóra og alþjóðafulltrúa er hafin og verður hægt að kjósa til kl. 16:00 mánudaginn 16. mars 2026.
Hér fyrir neðan getið þið kynnt ykkur frambjóðendur. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur þau vel áður en þið kjósið.
Hér er tengill á kosninguna sem lýkur kl. 16:00 mánudaginn 16. mars:
| Kosning hér! |
| Ef upp kemur "Notandi ekki skráður til þátttöku" vinsamlegast hafið samband við kjorstjorn@sha.is |
Embætti í forseta SHA:
Aðalbjörn Jóhannsson, félagsvísindum
Ég heiti Aðalbjörn Jóhannsson og er að bjóða mig fram til forseta Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA).
Ég er 33 ára félagsvísindanemi við HA, fulltrúi stúdenta í Gæðaráði háskólans, sit í stjórn FÉSTA, er fulltrúi SHA í fulltrúaráði LÍS (Landssamtaka Íslenskra Stúdenta) og er jafnframt núverandi stýri ERGI - Félags Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi. Í gegnum þessi hlutverk ásamt því að hafa setið í stúdentaráði síðasta starfsárið hef ég fengið tækifæri til að vinna að gæðamálum, jafnrétti, samfélagsuppbyggingu og öflugri rödd HA-inga í samfélaginu.
Á næsta starfsári stendur ný framkvæmdastjórn frammi fyrir því að tryggja sterkari fjármögnun SHA, byggja upp öfluga réttindaskrifstofu stúdenta, styðja við sjálfstæð og kraftmikil aðildarfélög ásamt því að efla hagsmunagæslu stúdenta bæði innan og utan háskólans. Þar er ótrúlega mikilvægt að horfa til gæði náms, umhverfis- og jafnréttismála og opins og inngildandi háskólasamfélags fyrir fjölbreytt samfélag stúdenta.
Á sama tíma er líka nauðsynlegt að þróa nýjar leiðir til að tengja fjarnema betur við samfélag stúdenta svo allir nemendur HA hafi raunveruleg tækifæri til félagslífs og jafningjastuðnings. SHA eru stór samtök með yfir 3000 félaga og það er mitt markmið aðverða og koma fram sem forseti þeirra allra, óháð búsetu, bakgrunni eða stöðu í námi.
Embætti hagsmunafulltrúa SHA:
Katla Ósk Káradóttir, lögfræði
Ég mætti á aðalfund SHA í fyrra, nýkjörin formaður Þemis og vissi ekkert allt of mikið hvernig hagsmunagæslu stúdenta væri háttað innan skólans. Ég lét það þó ekki stoppa mig í að rétta upp hendi á fundinum, oftar en einusinni og oftar er tvisvar. Undangegnið skólaár hef ég fengið að kynnast hagsmunagæslu stúdenta og tekið virkan þátt. Ég var fulltrúi stúdenta í jafnréttisráði, varafulltrúi SHA í fulltrúaráði LÍS, fulltrúi í gæðanefnd LÍS, sat háskólafund, sviðsfundi og stjórnarfundi hug- og félagsvísindasviðs, ásamt því að vera fulltrúi stúdenta í stýrihóp vegna mögulegrar sameiningar HA og HB þangað til viðræðum var slitið.
Sem hagsmunafulltrúi langar mig að gera upplýsingar um réttindi og skyldur stúdenta sýnilegri, vekja athygli á mikilvægi þáttöku stúdenta og valdefla sem allra flest til að láta sig málin varða og taka þátt í hagsmunagæslu okkar allra.
Rekstrarstjóri SHA:

Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, lögfræði
Ég býð mig fram í rekstrarstjóra SHA.
Fullt nafn er Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, ég er á öðru ári í BA í lögfræði.
Viðburðastjóri SHA:
Guðrún Lára Einarsdóttir, félagsvísindi
Ég heiti Guðrún Lára Einarsdóttir og ég er á þriðja ári í félagsvísindum með áherslu á afbrotafræði.
Ég hér með býð mig fram í embætti Viðburðastjóra SHA fyrir skólaárið 2026-2027.
Embætti alþjóðafulltrúa SHA:
Jóhannes Már Pétursson, félagsvísindi
English below
Ég heiti Jóhannes Már Pétursson og verð 23 ára í maí. Ég stunda nám við félagsvísindadeild háskólans og hef gengt embætti formanns alþjóðanefndar og varafulltrúa í fulltrúaráði LÍS seinastliðið starfsár.
Ég býð mig fram sem alþjóðafulltrúa SHA því ég hef mikla trú á því að alþjóðlegt starf innan háskólans og háskólasamfélagsins mun stækka og vill ég endilega halda áfram að sinna hagsmunum erlendra nema sem koma hingað að stunda nám. Seinastliðið ár hef ég í samstarfi við fráfarandi alþjóðanefnd og alþjóðaskrifstofu háskólans, haldið viðburði fyrir nemendur og hjálpað þeim að finna sig í okkar samfélagi, en einnig skrifað um hindranir sem erlendir nemar standa frammi fyrir hérlendis. Með stefnu stjórnvalda sem virðist stefna í að mynda fleiri hindranir fyrir erlenda nema til að koma hingað til náms tel ég það lykilatriði að samfélagið hafi sterkan alþjóðafulltrúa sem mun leggja allt til þess að þessar hindranir verði ekki margar og miklar.
Ef ég fæ þann heiður að sinna þessu starfi og stækka alþjóðlegt starf SHA, mögulega líka með samstörfum við erlend stúdentafélög, þá treysti ég því, að okkar háskóli verði að hið einu sanna mótvægi við stúdentafélag HÍ og að erlendir nemar horfi til Akureyrar og sjái háskólasamfélag sem öll vilja tilheyra.
My name is Jóhannes Már Pétursson and I will turn 23 in May. I study Social Science at the university and have been the appointed head of the international committee and have been sitting meetings within the national union of students for the past working year.
I am candidating for the office of international officer of the student union because I believe that international work within the university and the student society will get bigger and I want to continue to speak up for the interest of international students who come here to study. For the past year I have, together with the international committee and the international office, held events and help them to become part of our society, aswell as made the community aware of the obstacles international students stand before. With the plan of the government, it seems that they try to put more and more obstacles in the way for international students to come here. Because of that I think it is more than important to have a strong international officer who knows the system and will work hard on behalf of the interest of international students.
If I recieve the honor of being elected, I want to enlarge the international work of SHA, possibly with some cooperations with foreign student unions. Then I have full trust that our university will become the real powerhouse that stands opposite the student union of HÍ and that international students look towards Akureyri and will see the student society that all want to be a part of.
Ekki bárust framboð í eftirfarandi embætti og óskar kjörstjórn eftir framboðum í þau á aðalfundi:
Engin mótframboð bárust í eftirfarandi stöður og teljast því allir sem hafa boðið sig fram sjálfkjörnir. Eftirfarandi framboð bárust kjörstjórn:
Stúdentaráð:
Önnur embætti:
Niðurstöður kosninga verða kynntar á aðalfundi SHA mánudaginn 16. mars kl. 17:00 í hátíðarsal skólans.
Kveðja fyrir hönd kjörstjórnar
Sólveig Birna Elísabetardóttir, formaður kjörstjórnar
Helena Sjørup Eiríksdóttir
Erla Salome Ólafsdóttir