Aðalfundur SHA 2019

Stúdentaráð Stúdentafélags Háskólans á Akureyrir boðar til aðalfundar Stúdentafélags Háskólans á Akureyri þann 28. febrúar 2019 klukkan 19:00 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

Dagskrá aðalfundar:
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
4. Skýrsla fjármálastjóra, ársreikningar bornir upp til samþykktar.
5. Lagabreytingar.
6. Kosningar í framkvæmdarstjórn SHA.
7. Kosningar í önnur embætti.
8. Önnur mál.
9. Fundi slitið.

Samkvæmt 30. gr. laga SHA er kosið í embætti framkvæmdarstjórnar sem og önnur embætti og trúnaðarstörf á vegum félagsins rafrænt. Berist einungis eitt framboð í embætti, telst sá aðili sjálfkjörinn og þarf ekki að kjósa rafrænt í embættið. Þá kveða lögin á um það að berist ekki framboð í embætti, sé heimild til þess að opna fyrir framboð á aðalfundi og fer þá fram leynileg kosning á fundinum sjálfum þar sem fundargestir hafa atkvæðisrétt.

Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi:

Framkvæmdastjórn SHA:
Formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Varaformaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Fjármálastjóri Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.

Formenn fastanefnda:
Formaður Alþjóðanefndar.
Formaður Fjarnemanefndar.
Formaður Kynninganefndar.
Formaður Viðburðanefndar.

Háskólaráð:
Einn varafulltrúi til tveggja ára.

Gæðaráð:
Einn fulltrúi í gæðaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.

Önnur embætti:
Skoðunarmaður reikninga Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.

Einn fulltrúi í stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri til eins árs og einn til vara. Einn fulltrúi í stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.

Tveir fulltrúar í jafnréttisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tveir til vara.

Einn fulltrúi í vísindaráð Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.

Þrír fulltrúar í umhverfisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og þrír til vara.

Sex fulltrúar á háskólafund Háskólans á Akureyri til eins árs og sex til vara.

Einn fulltrúi í kannanateymi Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.  

Einn fulltrúi af meistarastigi og einn til vara í starfshóp um doktorsnám HA.

Tillögum um lagabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á netfangið sha@sha.is.

Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@sha.is. Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir aðalfund. 

Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf félagsins má nálgast á vefsíðu félagsins, www.sha.is eða með því að hafa samband við framkvæmdastjórn á skrifstofu félagsins eða í gegnum netfangið sha@sha.is.