Aðalfundur SHA 2023

Stúdentaráð Stúdentafélags Háskólans á Akureyri boðar til aðalfundar Stúdentafélags Háskólans á Akureyri þann 28. mars 2023 klukkan 14:00 í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

 

Dagskrá aðalfundar

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
  4. Skýrsla fjármálastjóra, ársreikningar bornir upp til samþykktar.
  5. Lagabreytingar.
  6. Kosningar í framkvæmdastjórn SHA.
  7. Kosningar í önnur embætti.
  8. Önnur mál.
  9. Fundi slitið.

Samkvæmt 31.gr. laga SHA er kosið í embætti framkvæmdastjórnar sem og önnur embætti og trúnaðarstörf á vegum félagsins rafrænt. Berist einungis eitt framboð í embætti, telst sá aðili sjálfkjörinn og þarf ekki að kjósa rafrænt í embættið. Þá kveða lögin á um það að berist ekki framboð í embætti, sé heimild til þess að opna fyrir framboð á aðalfundi og fer þá fram leynileg kosning á fundinum sjálfum þar sem fundargestir hafa atkvæðisrétt.

Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi:

 

Framkvæmdastjórn SHA
Formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Varaformaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Fjármálastjóri Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.

Formenn fastanefnda
Formaður Alþjóðanefndar.
Formaður Fjarnemanefndar.
Formaður Kynninganefndar.
Formaður Viðburðanefndar.
Formaður Nýsköpunar- og frumkvöðlanefndar.

Gæðaráð
Einn fulltrúi í Gæðaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.

Önnur embætti
Skoðunarmaður reikninga Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.

Tveir fulltrúar í stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.

Tveir fulltrúar í jafnréttisráð Háskólans á Akureyri og einn til vara.

Einn fulltrúi í vísindaráð Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.

Tveir fulltrúar í umhverfisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tveir til vara.

Sex fulltrúar á háskólafund Háskólans á Akureyri til eins árs og þrír til vara.

Einn fulltrúi í kannanateymi Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.

 

Samþykktabreytingar

Tillögum um samþykktabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á netfangið sha@sha.is.

 

Framboð til embætta og trúnaðarstarfa
Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@sha.is. Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Framboðsyfirlýsingar þurfa því að berast fyrir klukkan 14:00 þann 25. mars n.k. í framboðsyfirlýsingu skal koma fram fullt nafn viðkomandi, í hvaða embætti viðkomandi býður sig fram í og hver staða viðkomandi er í námi við HA. Þá skal fylgja mynd af viðkomandi í póstinum.

Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf félagsins má nálgast á vefsíðu félagsins, eða með því að hafa samband við framkvæmdastjórn á skrifstofu félagsins eða í gegnum netfangið sha@sha.is.