Föstudaginn 10. apríl tók Háskólinn á Akureyri formlega á móti grænfánanum við hátíðlega athöfn sem haldin var í tengslum við sjálfbærniráðstefnu háskólans árið 2026.
Það voru Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, og Yvonne Höller, formaður umhverfisráðs, ásamt fulltrúum SHA í umhverfisráði 2025–2026, þeim Daníel Skíði Reykjalín Ólafssyni og Robert Heyburn Mealey, sem veittu fánanum viðtöku.
Grænfáninn er alþjóðlegt viðurkenningarverkefni á vegum Landverndar sem miðar að því að efla umhverfisvitund og sjálfbærni í starfi stofnana og skóla. Viðurkenningin er veitt þeim sem vinna markvisst að umbótum í umhverfismálum og stuðla að aukinni vitund og ábyrgð í þeim efnum.
Innan Stúdentafélags Háskólans á Akureyri hefur áhugi á umhverfis- og sjálfbærnimálum farið ört vaxandi. Félagið hefur sett sér skýr markmið um að efla málaflokkinn innan eigin raða, valdefla stúdenta í umhverfis- ogsjálfbærnimálum og styðja við jákvæða þróun í háskólasamfélaginu. Sem liður í því var á síðasta aðalfundi félagsins í fyrsta sinn kjörinn sérstakur umhverfisfulltrúi SHA sem situr í umhverfisráði Háskólans á Akureyri og í stúdentaráði SHA með full réttindi og ábyrgð.
Stúdentafélagið er afar stolt af sínu fólki og Háskólanum á Akureyri fyrir að leggja aukna áherslu á umhverfis- og sjálfbærnimál, bæði í kennslu, rekstri og menningu skólans. Félagið hlakkar til að taka áfram virkan þátt í uppbyggingu málaflokksins og styðja við frekari framfarir í átt aðsjálfbærara háskólasamfélagi.