Fyrsta skóflustunga nýrra stúdentagarða tekin 2. september

Fyrsta skóflustunga nýrra stúdentagarða á háskólasvæði Háskólans á Akureyri verður tekin miðvikudaginn 2. september klukkan 15:30.

Um er að ræða mikilvægan og langþráðan áfanga fyrir stúdentasamfélagið við Háskólann á Akureyri. Uppbygging nýrra stúdentagarða mun styrkja aðgengi stúdenta að húsnæði, efla stúdentalíf á háskólasvæðinu og styðja við áframhaldandi þróun Akureyrar sem öflugs háskólabæjar.

SHA fagnar því sérstaklega að verkefnið sé nú að verða að veruleika. Aðgengi að öruggu og viðráðanlegu húsnæði er eitt af grundvallaratriðum þess að stúdentar geti stundað nám við góðar aðstæður og hefur uppbygging stúdentahúsnæðis því mikla þýðingu fyrir framtíð háskólasamfélagsins á Akureyri.

Verkefnið er jafnframt mikilvægt dæmi um samstarf í þágu stúdenta og vill SHA þakka Háskólanum á Akureyri og Akureyrarbæ fyrir þeirra þátt í að koma uppbyggingunni áfram.

Öllum stúdentum er boðið að vera viðstödd þegar fyrsta skóflustungan verður tekin og taka þátt í að fagna þessum merka áfanga.

Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur í Borgum rannsóknarhúsi.

Hvenær: 2. september kl. 15:30
Hvar: Háskólasvæði Háskólans á Akureyri

Við hvetjum stúdenta til að mæta og fagna með okkur upphafi nýs kafla í uppbyggingu stúdentahúsnæðis á Akureyri.