Jafnréttisdagar 2023

Jafnréttisdagar standa yfir 6. - 9. febrúar.
Fjölmargir spennandi stað- og fjarviðburðir standa til boða í öllum háskólum landsins um kyn, fötlun, stéttarstöðu, hinseginleika, uppruna og fleira.

Ókeypis er inn á alla viðburðina og öll hvött til að mæta sér til skemmtunar og fróðleiks.

Jafnréttisdagar eru eitt stærsta samstarfsverkefni háskólanna. Þeir hafa undanfarin tvö ár farið fram á netinu vegna kórónuveirufaraldursins en afar gleðilegt er að geta nú aftur boðið áhugafólk um jafnréttismál velkomið á viðburði í háskólunum sjö. Í boði verða þó einnig fjölmargir viðburðir í streymi.

Jafnréttisdagar háskólanna fanga jafnréttismál í sinni víðustu mynd. Bakslagið í hinsegin baráttunni, netið, kvenhatur og samsæriskeningar, stéttaskipting í íslensku málsamfélagi, umræður um vald, málsmeðferð stjórnvalda í málum flóttakvenna, jafnréttisvöfflur, upplifun og aðgengi í jaðarhópa að háskólanámi, einhverfuhittingur, öráreiti og feminísk sjálfsvörn sem forvörn við kynbundnu ofbeldi er aðeins brot af afar veglegri dagskrá Jafnréttisdaga. Þátttakendur og fyrirlesarar á Jafnréttisdögum koma bæði úr háskólasamfélaginu og frá ýmsum stofnunum og félagasamtökum svo fátt eitt sé nefnt.

Í Háskólanum á Akureyri fara svo fram eftirfarandi viðburðir í vikunni:

Þriðjudagurinn 7. febrúar: Jafnréttislöggjöfin og málsmeðferð stjórnvalda í málum kvenna á flótta, Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við lagadeild Háskólans á Akureyri flytur erindi milli kl. 11:50-12:50 (Stofa M101, en einnig í streymi).

Miðvikudagurinn 8. febrúar: Hvers vegna skiptir UN Women máli? María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women flytur erindi milli kl. 12:00-13:00. Þetta er erindi kemur frá SHA svo væri mjög gaman að sjá sem flesta mæta á þennan viðburð. (Stofa M101, en einnig í streymi).

Fimmtudagurinn 9. febrúar: Jafnréttisvöfflur í Miðborg í Háskólanum á Akureyri milli klukkan 9-10, en þar verða einnig kynningarbásar frá félagasamtökum og stofnunum sem vinna á sviði jafnréttismála. 

Fimmtudagurinn 9. febrúar: Ráðstefnan „Vald, forréttindi og öráreitni" sem háskólarnir standa saman að stendur svo yfir frá 10-16 og hefst með málstofu í hátíðarsal Háskólans á Akureyri (og í streymi) milli kl. 10:00 og 11:30 undir yfirskriftinni Að vera hinsegin í námi og starfi. Þar flytur Elín Díanna Gunnarsdóttir aðstoðarrektor HA ávarp og á eftir fylgja erindi frá Ingileif Friðriksdóttur, sjónvarps- og fjölmiðlakonu og María Rut Kristinsdóttur, kynningarstýru UN Women og Vilhjálmi Hilmarssyni hagfræðingi hjá BHM. Að erindum loknum fara fram panelumræður ásamt Önnu Lilju Björnsdóttir, sérfræðingi hjá Jafnréttisstofu. Fundarstjóri er Kristín Jóhannesdóttir, Sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar.

Hér má síðan finna á Facebook-síðu daganna (hér).

Hér má síðan sjá dagskrá daganna

If you want to see the program for Jafnréttisdagar in English you can go to the Facebook site and see it there with other information about the days. (here).