Ný framkvæmdastjórn kjörin á aðalfundi SHA

Nýkjörin framkvæmdastjórn SHA. F.v. Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, Jóhannes Már Pétursson, Katla Ós…
Nýkjörin framkvæmdastjórn SHA. F.v. Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir, Jóhannes Már Pétursson, Katla Ósk Káradóttir, Aðalbjörn Jóhannsson, Rakel Rún Sigurðardóttir, Guðrún Lára Einarsdóttir

Aðalfundur Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA) var haldinn fyrr í dag, 16. mars 2026, og var hann vel sóttur af stúdentum úr öllum deildum skólans sem og frá aðildarfélögum stúdentafélagsins. Á fundinum komu stúdentar saman til að ræða starfsemi félagsins, taka afstöðu til mikilvægra mála  og kjósa í lausar stöður stúdentaráðs.

Fyrir fundinn voru samþykktar breytingar á samþykktum félagsins þar sem ákveðið var að fjölga í framkvæmdastjórn úr þremur fulltrúum í sex. Með breytingunni er markmiðið að efla starfsemi SHA, dreifa verkefnum betur og skapa enn öflugri vettvang fyrir stúdenta til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt, háskólasamfélagið, fjölbreytt félagslíf og sterka hagsmunabaráttu. Ný framkvæmdastjórn SHA var kjörin í rafrænni kosningu í gegnum Uglu þar sem allir stúdentar Háskólans á Akureyri höfðu tækifæri til þess að kjósa eða hafna frambjóðendum. 

Ný framkvæmdastjórn SHA starfsárið 2026-2027

Nýja framkvæmdastjórn SHA skipa:

Forseti
Aðalbjörn Jóhannsson

Hagsmunafulltrúi
Katla Ósk Káradóttir

Rekstrarstjóri
Heiðrún Hafdal Björgvinsdóttir

Viðburðastjóri
Guðrún Lára Einarsdóttir

Alþjóðafulltrúi
Jóhannes Már Pétursson

Samskiptafulltrúi
Rakel Rún Sigurðardóttir

Framkvæmdastjórnin mun á komandi starfsári vinna að því að efla stúdentasamfélagið við Háskólann á Akureyri, standa vörð um hagsmuni stúdenta og styðja við öflugt félagslíf innan skólans.

Kjör í stúdentaráð

Jafnframt voru eftirfarandi kjörin í stúdentaráð, ásamt forsetum og formönnum sem hlutu kjör á aðalfundum aðildarfélaga:

Gæðafulltrúi SHA
Aldís Mjöll Hlynsdóttir

Umhverfisfulltrúi SHA
Svana Rún Austmar Aðalbjörnsdóttir

Jafnréttisfulltrúi SHA
Mars Baldursson

Fulltrúar í ráð Háskólans á Akureyri

Á aðalfundinum voru einnig kjörnir fulltrúar stúdenta í ráð innan Háskólans á Akureyri:

Fulltrúi stúdenta í Jafnréttisráði HA
Símon Birgir Stefánsson

Fulltrúi stúdenta í Umhverfisráði HA
Arnór Erlendsson

Þakkir til kjörstjórnar og fundarstjóra

Nýkjörin framkvæmdastjórn SHA vill færa kjörstjórninni kærar þakkir fyrir fagleg og vel unnin störf við framkvæmd kosninganna:

  • Sólveig Birna Elísabetardóttir, formaður kjörstjórnar

  • Helena Sjørup Eiríksdóttir

  • Erla Salome Ólafsdóttir

Einnig vill framkvæmdastjórnin þakka Silju Rún Friðriksdóttur, sem gegndi hlutverki fundarstjóra á aðalfundinum og stýrði fundinum af öryggi og festu.

Ný framkvæmdastjórn hlakkar til komandi starfsárs og samstarfs við stúdenta, aðildarfélög og starfsfólk Háskólans á Akureyri við að efla enn frekar stúdentalífið á háskólasvæðinu.