Nýnemavikan hjá FSHA

Nýnemadagar
Nýnemadagar

Nú styttist í það að nýnemavikan hefjist og verður megin tilgangur FSHA að bjóða nýnema velkomna í háskólann og kynna þeim fyrir því frábæra félagslífi sem hér er. 

Í hádegi þess dags, sem kynning hvers sviðs fer fram, munum við bjóða upp á grillaðar pylsur fyrir nýnema þess sviðs, þ.e.a.s. nemendur hug- og félagsvísindasviðs á mánudeginum 25. ágúst, nemendur heilbrigðisvísindasviðs á miðvikudeginum 27.ágúst og nemendur viðskipta- og raunvísindasvið fimmtudaginn 28. ágúst. 

Dagskráin á föstudaginn hefst með hringingu Íslandsklukkunnar og eru nemendur allir hvattir til að mæta á bílaplanið fyrir neðan klukkuna, þar sem akademíska árinu verður hringt inn.

Eftir það verður haldið á Hamra þar sem skemmtileg dagskrá tekur við en ætlunin er að hrista saman hópinn. Eftir allt fjörið ætlar FSHA að grilla hamborgara og bjóða upp á svalandi drykki með. Rúta mun fara frá aðalingangi skólans og svo til baka síðar um daginn.

Um kvöldið býður FSHA svo nýnemum og eldri nemendum velkomna á Pósthúsbarinn á nýnemadjammið sjálft!

Við hvetjum alla til að mæta, hvort sem þú ert með vinum þínum eða þekkir ekki neinn! Þetta er frábær byrjun á því sem á eftir að vera frábær háskólaganga :)