Vorið 2026 óskaði framkvæmdastjórn SHA eftir aðgangi að öllum lokaprófum sem þreytt voru við Háskólann á Akureyri 2025. Nú styttist í að þau gögn verði afhent og gerð aðgengileg stúdentum. Teljum við því mikilvægt að greiða úr misskilningi sem við höfum orðið vör við að undanförnu.
Ár eftir ár leita stúdentar til SHA vegna þess að illa gengur að fá aðgang að eldri lokaprófum. Meira er um slíkt innan ákveðinna námsleiða en þó koma alltaf einhver mál úr öllum áttum. SHA hefur leitast við að leiðbeina stúdentum um rétt sinn og hafa fulltrúar félagsins beitt sér fyrir bættu verklagi svo að forðast megi slík mál. Erfiðlega hefur þó gengið að koma á samræmdu verklagi og fyrir vikið halda slík mál áfram að berast á borð félagsins.
Í upplýsingalögum nr. 140/2012 er öllum sem þess óska veittur skýr réttur til aðgengis að opinberum gögnum innan þeirra takmarka sem þar eru sett. Er því öllum frjálst að óska eftir aðgangi að opinberum gögnum stjórnvalda, líkt og lokapróf eru.
Námskeið eru jafn mismunandi og þau eru mörg og það eru kennarar líka. Við stöndum frammi fyrir þeim vanda að námsmat verður sífellt einhæfara, tækifærum stúdenta til að láta reyna á þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér fer fækkandi og lokapróf spila æ veigameiri þátt í námsmati. Því hefur það aldrei verið jafn mikilvægt og nú að stúdentar hafi aðgang að upplýsingum sem gefa raunhæfa mynd af því hvernig hæfniviðmið eru prófuð.
Markmið aðgengis að eldri prófum er ekki að stuðla að utanbókarlærdómi eða að stúdentar geti endurtekið fyrri próf, enda höfum við ekki óskað eftir úrlausnum. Hins vegar sýnir reynsla stúdenta að aðgangur að eldri prófum veitir þeim innsýn í það hvernig þekking er metin, hvaða færni er lögð áhersla á og hversu mikillar dýptar efnistaka er vænst í lokaprófum. Slíkt stuðlar að auknu jafnræði á milli stúdenta, markvissari undirbúningi þeirra, dregur úr óvissu og eykur líkur á að stúdentar einbeiti sér að raunverulegum námsmarkmiðum námskeiða. Raunin er því miður sú að í mörgum námskeiðum hafa stúdentar ekki tækifæri á slíku með verkefnavinnu og endurgjöf áður en þeir þreyta lokapróf.
Það skal tekið skýrt fram að í mörgum námskeiðum er slíkt til fyrirmyndar, kennarar fara vel yfir efnistök, áhersluatriði og til hvers er ætlast. Eins eru námskeið þar sem birt eru annaðhvort eldri lokapróf eða spurningar sem gefa raunhæfa mynd af efnistökum, dýpt, formi prófa, áherslum og væntingum. Eiga þau sem þar standa að baki lof skilið.
Að því sögðu er staðan ekki sú í öllum námskeiðum og því langar okkur að breyta.
Vonir okkar standa til þess að settar verði reglur sem koma á fót samræmdu verklagi þvert á deildir og námsleiðir sem tryggir að stúdentar hafi aðgang að a.m.k. einu eldra lokaprófi úr hverju námskeiði, sem sýnir raunveruleg efnistök námskeiðs, án þess að þurfa að hefja stjórnsýslumál til að njóta réttinda sinna. Eldra lokapróf veitir almennt skýrustu mynd af uppbyggingu námsmats, áherslum námskeiðs og þeim kröfum sem gerðar eru til stúdenta.
Í þeim tilvikum þar sem málefnalegar ástæður standa í vegi fyrir birtingu eldri prófa, svo sem þegar um er að ræða klásuspróf, telur SHA mikilvægt að stúdentum sé tryggður aðgangur að sambærilegu undirbúningsefni. Slíkt efni getur verið í formi sýnisprófs, dæmasafns eða annars efnis sem endurspeglar raunverulegt form prófsins, helstu áherslur þess og þá dýpt efnistaka sem ætlast er til af stúdentum.
Með slíku verklagi yrði stuðlað að auknu gagnsæi, betri aðstæðum stúdenta til náms og auknu jafnræði stúdenta þvert á námsleiðir. Þannig væri kennurum frekar í sjálfsvald sett hvaða próf eru birt og geta þeir þannig gengið úr skugga um að þau próf sem eru birt gefi raunhæfa mynd af námsmati. Við vonum að SHA muni aldrei þurfa að beita sér með svo róttækum hætti aftur til að tryggja jafnræði stúdenta til aðgangs að upplýsingum og erum boðin og búin til að vera háskólanum innan handar við mótun verklags svo að útkoman megi vera öllum farsæl.
Algengar spurningar
Hvaða prófum var óskað eftir?
-Einungis þeim lokaprófum sem þreytt voru árið 2025.
Var óskað eftir svarlyklum?
- Nei, einungis prófspurningum.
Hvað verður gert við prófin?
- Prófin verða birt á lokuðu skjalasvæði SHA þar sem þau verða gerð aðgengileg öllum stúdentum við HA.
Verður þetta gert á hverju ári?
- Við vonum að sameiginlegt átak verði til þess að ekki sé þörf á slíkum ráðstöfunum í framtíðinni.