Um er að ræða heildarendurskoðun samþykkta félagsins með það að markmiði að samræma þær núverandi starfsemi SHA, skýra hlutverk og ábyrgð innan stjórnskipunar félagsins og styrkja innra skipulag, gagnsæi og hagsmunagæslu. Undirbúningur að samþykktarbreytingum hefur verið unninn af sérstakri laga- og stefnunefnd SHA sem skipuð var af stúdentaráði á haustmisseri 2026. Tillagan verður auglýst sérstaklega á miðlum og heimasíðu SHA. Helstu breytingar fela meðal annars í sér: Skýrari afmörkun hlutverka framkvæmdastjórnar, stúdentaráðs og aðildarfélaga Fjölgun fulltrúa í framkvæmdastjórn úr 3 í 6 með tilkomu hagsmunafulltrúa, alþjóðafulltrúa, samskiptafulltrúa og viðburðastjóra ásamt þróun fjármálastjóra í rekstrarstjóra Formlega skilgreiningu á réttindaskrifstofu SHA Uppfært fyrirkomulag fastanefnda og tímabundinna nefnda Skýrari reglur um fjármál, prókúru, gagnsæi og heimildir nefnda og ráða Endurskipulagningu á kjöri og hlutverkum fulltrúa í ráðum háskólans Bráðabirgðaákvæði sem tryggja samfellu í innleiðingu nýrra embætta og kjörtímabila Samþykktabreytingarfundi er eingöngu heimilt að fjalla um tillögur að breytingum á samþykktum félagsins. Allir fullgildir félagar SHA hafa setu-, tillögu- og atkvæðisrétt á fundinum. Tillögur stúdentaráðs ná til samþykktanna í heild sinni og munu liggja fyrir en hægt verður að bera upp breytingartillögur á tillögu stúdentaráðs á fundinum sjálfum. Fullgildir félagar SHA hafa þó fullt frelsi til þess að senda til framkvæmdastjórnar aðrar og ólíkar tillögur að breytingum á núgildandi samþykktum SHA allt að tveimur sólarhringum fyrir auglýstan samþykktabreytingafund sem verða þá jafnframt auglýstar í síðasta lagi sólarhring fyrir fund, teknar til umræðu og afgreiddar á fundinum sjálfum. Stúdentaráð SHA hvetur félagsfólk til að kynna sér tillögur stúdentaráðs, mæta á samþykktabreytingafund og taka virkan þátt í umræðu og atkvæðagreiðslu. Verði tillögur stúdentaráðs samþykktar þá er gert ráð fyrir að kjör og skipan fulltrúa fari eftir uppfærðum samþykktum sem mun að öðru leiti taka gildi á aðalfundi SHA sem haldinn verður 16. mars 2026.