Stúdentaráð SHA samþykkti í vor að fagna því sérstaklega að samfélag stúdenta við Háskólann á Akureyri hefur í haust sitt fertugasta starfsár en félagið verður 40 ára árið 2027. Það er stór áfangi, enda hefur SHA um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir félagslíf, réttindabaráttu, hagsmunagæslu og samstöðu stúdenta við HA.
Í tilefni tímamótanna hefur verið ákveðið að ráðast í nokkra andlitslyftingu á ásýnd félagsins. Þar ber helst að nefna að merki SHA verður uppfært í takt við þróun félagsins og breyttan veruleika stúdentasamfélagsins. Jafnframt er unnið að nýrri heimasíðu sem á að gera upplýsingar aðgengilegri, skýrari og skemmtilegri fyrir stúdenta, aðildarfélög, samstarfsaðila og aðra sem vilja fylgjast með starfi SHA.
Stefnt er að því að þessari vinnu verði lokið fyrir nýnemadaga í haust. Þangað til gæti þó borið á því að upplýsingar, myndir eða annað efni á núverandi heimasíðu sé ekki alveg uppfært eða rétt. Við biðjumst velvirðingar á því á meðan unnið er að breytingunum.
Við hlökkum mikið til að kynna nýtt merki, nýja heimasíðu og nýja ásýnd SHA í upphafi næsta skólaárs. Allt er jú fertugum fært!