SHA leggst gegn hækkun framfærsluviðmiða erlendra stúdenta

SHA hefur skilað umsögn inn í samráðsgátt stjórnvalda þar sem félagið leggst gegn fyrirhugaðri 45% hækkun framfærsluviðmiða erlendra námsmanna. Félagið kallar eftir því að alþjóðlegum stúdentum verði tryggðar raunhæfar forsendur til að hefja nám og ljúka því.

Að flytja til annars lands í nám er stór ákvörðun. Stúdentar finna sér húsnæði, skipuleggja fjármögnun námsins og byggja upp nýtt líf, stundum með maka og börnum. Þau þurfa að geta treyst því að fjárhagslegum forsendum námsins verði ekki kollvarpað á miðjum námsferli.

Þetta er meðal þess sem SHA leggur áherslu á í umsögn um drög að reglugerð um framfærslu vegna umsókna um dvalarleyfi og íslenskan ríkisborgararétt.

Samkvæmt kynningu stjórnvalda myndi mánaðarlegt framfærsluviðmið námsmanna og doktorsnema hækka úr tæpum 260 þúsund krónum í tæpar 376 þúsund krónur. Stúdentar sem þurfa dvalarleyfi vegna náms þyrftu því að sýna fram á um 116 þúsund krónum meiri framfærslu á mánuði en áður.

SHA telur að þessi hækkun geti útilokað fólk frá námi hér á landi og gert núverandi stúdentum erfitt fyrir að halda námi sínu áfram.

Hvers vegna þurfa sumir stúdentar að sýna fram á meiri framfærslu?

Í umsögninni bendir SHA á að fyrirhugaða viðmiðið sé um 26% hærra en grunnframfærsla Menntasjóðs námsmanna með húsnæðisviðbót fyrir einhleypan námsmann. Sú fjárhæð er samtals tæpar 299 þúsund krónur á mánuði áður en kemur til tekjuskerðingar.

Þótt námslán og framfærsluskilyrði dvalarleyfa þjóni ólíkum tilgangi þurfa stjórnvöld að útskýra þennan mun og rökstyðja hvað liggur að baki þess mats að stúdentum utan EES, sem þurfa dvalarleyfi vegna náms, sé gert að sýna fram á svo miklu hærri fjárhæð.  Ef tæpar 376 þúsund krónur eru hinsvegar nauðsynlegar til framfærslu stúdenta, hvað segir það þá um framfærsluna sem Menntasjóður býður upp á? Ef lægri fjárhæð getur dugað, hvers vegna á þá að setja þessum hópi hærri fjárhagslegan þröskuld?

SHA telur að þessum spurningum hafi ekki verið svarað með fullnægjandi hætti og kallar eftir skýrum rökstuðningi og jafnræði stúdenta.

Þau sem hafa hafið nám þurfa öryggi til að ljúka því

Sérstakar áhyggjur SHA snúa að stúdentum sem þegar eru í námi. Drögin gera ráð fyrir gildistöku 1. janúar 2027 og að nýju reglurnar nái einnig til óafgreiddra umsókna.

Stúdentar sem hafa skipulagt nám sitt og líf út frá gildandi skilyrðum þurfa meiri fyrirsjáanleika. SHA fer því fram á að þau sem hafa hafið nám með gildu dvalarleyfi fyrir gildistöku fái að ljúka námsgráðu sinni á fyrri fjárhæðarviðmiðum, miðað við eðlilega námsframvindu og viðurkenndar tafir.

Reglurnar þurfa að taka mið af lífi stúdenta

Fjárhagur stúdenta getur byggst á námslánum, styrkjum, sparnaði og vinnu samhliða námi. Reglurnar þurfa að taka mið af því hvernig þessir fjármunir berast. Staðfestur námsstyrkur á til dæmis að geta nýst við mat á framfærslu þótt hann sé greiddur í áföngum.

SHA kallar einnig eftir skýrari reglum fyrir stúdenta með maka og börn og svigrúmi þegar veikindi, fötlun eða tímabundnar greiðslutafir hafa áhrif á fjárhag. Þá þurfi að tryggja að nám verði ekki fjárhagsleg hindrun við umsókn um íslenskan ríkisborgararétt.

Alþjóðlegir stúdentar eru samnemendur okkar, vinir og hluti af samfélaginu við HA og á Akureyri. Þau þurfa að geta byggt hér upp líf og tekið þátt í háskólasamfélaginu án þess að ófyrirsjáanlegar fjárhagskröfur setji námið í uppnám. Það er jafnframt sanngjörn og eðlileg von hvers samfélags að þeir einstaklingar sem til þess koma til náms sjái hag sinn í því að setjast að í nærsamfélaginu, gerist fullgildir meðlimir þess og taki þátt í uppbyggingu og framtíð. Núverandi drög setja erlendu námsfólki erfiðara fyrir að skjóta rótum, leið þess að ríkisborgararétt lengri og erfiðari og kippa fótunum undan möguleikum samfélagsins til þess að nýta í heimabyggð til fulls þá fjárfestingu sem felst í háskóla og menntun. Því er að afstaða SHA að hækkun framfærsluviðmiða námsmanna utan EES sé ekki aðeins aðför að möguleikum stúdenta heldur bitni hækkunin beint og alvarlega á nærsamfélagi Háskólans á Akureyri.

SHA fer fram á að fallið verði frá hækkuninni og að sanngjörn og raunhæf framfærsluviðmið verði mótuð í beinu samráði við stúdenta og háskóla.

Hér má finna umsögnina í heild sinni.