SHA og Ergi fögnuðu Hinsegin hátíð á Norðurlandi Eystra með fræðslu, samstöðu og litagleði

Stúdentafélag Háskólans á Akureyri og Ergi, félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi, stóðu fyrir tveimur viðburðum í tengslum við Hinsegin hátíð á Norðurlandi Eystra, sem fór fram í júní. Viðburðirnir voru Hinnblástur og Raddir gegn hatri: Námskeið í gagnræðu.

Viðburðirnir voru vel sóttir af stúdentum, starfsfólki Háskólans á Akureyri og einstaklingum úr nærsamfélaginu. Mikil ánægja var með þátttökuna og mynduðust frábærar og mikilvægar umræður um stöðu hinsegin fólks, samfélagslega ábyrgð, sýnileika, samstöðu og leiðir til að bregðast við fordómum og hatursorðræðu.

Hinnblástur var skapandi og valdeflandi viðburður þar sem þátttakendur komu saman, ræddu hinsegin málefni og unnu að sýnileika og samstöðu í aðdraganda hátíðarinnar. Markmiðið var að skapa hlýlegt og opið rými þar sem stúdentar og aðrir þátttakendur gætu deilt hugmyndum, kynnst hvert öðru og tekið þátt í uppbyggilegri dagskrá í anda hinsegin samfélagsins.

Á námskeiðinu Raddir gegn hatri: Námskeið í gagnræðu var fjallað um hvernig hægt er að mæta hatursorðræðu, fordómum og skaðlegri umræðu með gagnræðu, fræðslu og virku samtali. Námskeiðið var haldið í samstarfi við Samtökin ’78, sem sendu fræðara norður til Akureyrar. Fulltrúar úr stjórn og af skrifstofu Samtakanna ’78 tóku einnig þátt í viðburðinum og lögðu sitt af mörkum til umræðunnar.

Auk viðburðanna sendu SHA og Ergi að sjálfsögðu öfluga fulltrúa í hinsegin göngu og hátíðarhöld í Hrísey. Þar var gleðin við völd þrátt fyrir bleytu og kulda, enda létu þátttakendur veðrið ekki stoppa sig og skemmtu sér konunglega í hátíðlegri og litríkri stemningu.

SHA og Ergi vilja koma á framfæri innilegu þakklæti til Samtakanna ’78 fyrir samstarfið, fræðsluna og mikilvægt framlag þeirra til viðburðarins. Þá færum við einnig bakhjörlum og skipuleggjendum Hinsegin hátíðar á Norðurlandi Eystra bestu þakkir fyrir stuðninginn og styrkina sem gerðu SHA og Ergi kleift að halda þessa viðburði.

Viðburðirnir sýndu skýrt hversu mikilvægt það er að skapa rými fyrir hinsegin stúdenta, starfsfólk háskólasamfélagsins og nærsamfélagið til að koma saman, læra hvert af öðru og efla samstöðu. SHA og Ergi líta á þátttökuna sem hvatningu til áframhaldandi samstarfs, fræðslu og sýnileika hinsegin fólks á Norðurlandi.

Við þökkum öllum sem mættu, tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera viðburðina að jákvæðri, fræðandi og valdeflandi upplifun.