Nýverið tók Háskólinn á Akureyri mikilvægt skref í átt að inngildandi náms- og starfsumhverfi þegar allar kynjamerkingar á salernum voru fjarlægðar og aðstöðumerking tekin upp í staðinn. Við í SHA fögnum þessu framtaki og viljum leggja okkar af mörkum til að styðja við þessa frábæru vinnu, því háskólinn okkar er fyrir öll og það er undir okkur öllum komið að sýna það í verki.
Við fórum því á stúfana og höfðum samband við Natracare. Þökk sé þeirra rausnarlega framlagi eru tíðavörur núna aðgengilegar á öllum snyrtingum í Sólborg.
Svo eru vörurnar frá Natracare bæði plast- og eiturefnalausar, sem rímar einstaklega vel við grænfánann okkar.
Takk HA fyrir að sýna samstöðu í verki og takk Natracare fyrir að leggja okkur lið.