Tjaldurinn er mættur og vorið með honum!

Í gegnum tíðina hefur Tjaldurinn verið vorboði Háskólans á Akureyri. Í frétt á heimasíðu skólans frá árinu 2020 segir:

Frá því að HA hóf starfsemi sína á Sólborg hefur Tjaldurinn ásamt maka verið trúfastur gestur í apríl á hverju vori. Mögulega hefur sama parið komið í 25 ár - enda getur hann orðið allt að 30 ára gamall. Hann verpti í upphafi í vegkantinum norðan við Sólborgarsvæðið en hefur nú flutt sig upp á þak G-húss - sem hýsir nýtt upptökuver og miðstöð náms- og starfsráðgjafar. 

Við vonum innilega að tjaldurinn hafi rétt fyrir sér Sun

Fyrir áhugsaöm má hér finna eldri greinar inná unak.is um komu tjaldsins:

https://www.unak.is/is/haskolinn/leit?q=tjaldurinn