Stúdentafélag Háskólans á Akureyri varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að halda Landsþing Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) árið 2026. Þingið fór fram í hátíðarsal Háskólans á Akureyri og tókst afar vel til. Landssamtökin og aðildarfélög nýttu þennan æðsta samráðsvettvang stúdenta einstaklega vel til að ræða sameiginleg hagsmunamál, draga saman áherslur okkar við mótun háskólastefnu og styrkja tengsl aðildarfélaganna.
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, setti tóninn fyrir þingið með samtali við Lísu, forseta LÍS, og Aðalbjörn, forseta SHA. Ræddu þau um stöðu stúdenta, mikilvægi háskólastigsins í íslensku samfélagi og framtíðarsýn í mennta- og jafnréttismálum með hliðsjón af tilkomu gervigreindar. Þau settu tóninn fyrir þingið á kröftugan og eftirminnilegan hátt. Í kjölfarið fengum við þrjú erindi sem öll tengdust á sinn hátt mótun háskólastefnu; Silja Jóhannesar Ástudóttir, samskiptastjóri Háskólans á Akureyri, flutti erindi um mikilvægi miðlunar rannsóknarniðurstaða í samhengi við eflingu háskóla, Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, fræddi okkur um félagslega stéttaskiptingu hvað varðar háskólanám og Robert Mealey miðlaði dýrmætri reynslu sinni af hagsmunabaráttu stúdenta í Kanada.
Á þinginu komu saman fulltrúar aðildarfélaga LÍS og áttu þar málefnalegt og uppbyggilegt samtal um mótun háskólastefnu til framtíðar. Umræðurnar endurspegluðu sameiginlegan vilja stúdenta til að styrkja stöðu háskólanna og bæta starfsumhverfi nemenda. Vanfjármögnun háskólastigsins og innviðaskuld þess var áberandi þema í umræðum þingsins.
Á Landsþinginu voru eftirfarandi ályktanir frá SHA samþykktar:
Ályktun um neyðarástand íslenskra háskóla
Ályktun um réttindi og vernd stúdenta utan EES við breytingar á gjaldtöku í háskólum
Ályktun um áskorun á alla háskóla á Ís
landi til að taka skýra, sýnilega og virka afstöðu varðandi bakslag í jafnréttis- og mannréttindamálum
Ályktun um siðferðilega ábyrgð háskóla og stúdenta gagnvart stríði og mannréttindabrotum
Ályktun um tvíhliða samning við Bretland um jafnan aðgang að háskólanámi
Að auki var samþykkt yfirlýsing Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík um áhrif framkvæmda tengdum Borgarlínuverkefninu á nemendur við Háskólann í Reykjavík. Þá samþykkti landsþingið jafnframt að senda frá sér sameiginlega viljayfirlýsingu landsþings LÍS um herferð gegn vanfjármögnun háskólanna, sem felur í sér skýra og sameiginlega yfirlýsingu stúdenta um brýna þörf á aukinni fjárfestingu í háskólastigi Íslands.
Þrátt fyrir að bæði mikilvæg og alvarleg mál hafi verið í brennidepli buðum við einnig upp á skemmtidagskrá til að hrista hópinn saman. Á föstudagskvöldinu var efnt til kvöldvöku í boði SHA, sem skapaði vettvang fyrir óformlegt samtal og tengslamyndun meðal þingfulltrúa. Þinginu lauk síðan með sameiginlegum kvöldverði á Skógur Bistro, áður en haldið var áframí karaoke á Vamos, þar sem við innsigluðum helgina með dansi og söng.
SHA þakkar öllum þátttakendum, gestum og samstarfsaðilum kærlega fyrir afar ánægjulegt og innihaldsríkt Landsþing LÍS 2026. Sérstakar þakkir fær Háskólinn á Akureyri fyrir afnot af húsnæði skólans og góða samvinnu.