Vel heppnaður vinnudagur SHA

Í október hélt SHA sinn árlega vinnufund. Þema fundarins í ár var stefnumótun og ímynd félagsins. Fundurinn byrjaði á innleggi frá Sólveigu Maríu, verkefnastjóra samfélagsmiðla og samskipta, og Silju Rún, verkefnastjóra námssamfélags. Þær fjölluðu um markaðssetningu háskólasamfélagsins og mikilvægi stúdenta fyrir orðspor háskólans. Þeirra innlegg var frábært veganesti inn í vegferð félagsins í áframhaldandi ímyndarvinnu.

Þar á eftir hélt Aldís Mjöll, gæðafulltrúi SHA, stutta tölu um mikilvægi stúdentamiðaðs gæðastarfs. Að erindum loknum hélt fjölmennur hópur stúdenta yfir í hátíðarsal skólans þar sem þeirra beið þemaskipt hópavinna.

Hópnum var skipt á fimm stöðvar þar sem allir hópar fengu tækifæri til að ræða fimm mismunandi þemu og gátu þá stúdentar komið fram mikilvægum sjónarmiðum hvað varðar stefnumótun SHA.

Að samtalinu loknu voru í boði Astró pizzur sem voru vel verðskuldaðar fyrir stúdentana sem tóku þátt. Eftir pizzurnar hristi framkvæmdastjórn saman hópinn með drepfyndnu pubquizi frá Heiðrúnu, rekstrarstjóra SHA.

Fundurinn var mjög vel sóttur af stúdentum og viljum við í framkvæmdastjórn SHA þakka öllum kærlega fyrir mætinguna, en ekki síst fyrir virka þátttöku og skemmtilegan dag.

Framkvæmdastjórn hefur þegar hafið vinnu við að draga saman niðurstöður fundarins sem verða í framhaldinu lagðar til grundvallar endurskoðunar stefnu félagsins.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá fundinum ❤️