Vorið 2026 óskaði framkvæmdastjórn SHA eftir aðgangi að öllum lokaprófum sem þreytt voru við Háskólann á Akureyri árið 2025. Nú hafa þau verið afhent og geta stúdentar nálgast þau hér:
Aðeins virkir stúdentar við HA hafa aðgang að síðunni og því þarf að skra sig inn með unak-netfangi.
Markmið aðgengis að eldri prófum er ekki að stuðla að utanbókarlærdómi eða að stúdentar geti endurtekið fyrri próf. Reynsla stúdenta sýnir að aðgangur að eldri prófum veitir þeim innsýn í það hvernig þekking er metin, hvaða færni er lögð áhersla á og hversu mikillar dýptar efnistaka er vænst í lokaprófum. Slíkt stuðlar að auknu jafnræði milli stúdenta, markvissari undirbúningi þeirra og dregur úr óvissu.
Ath!
Undanþegin eru þau lokapróf sem hafa verið óbreytt á milli ára, sem og klásuspróf í hjúkrunarfræði og sálfræði.
Nánari umfjöllun um málið má lesa í eldri frétt SHA