Landsamtök íslenskra stúdenta - LÍS

Myndin tekin á Landsþingi LÍS 202 sem haldin var á Akureyri
Mynd tekin á Landsþingi LÍS sem haldið var í Háskólanum á Akureyri í mars árið 2020

Landssamtök íslenskra stúdenta voru stofnuð á Akureyri í nóvember árið 2013 sem hagsmunasamtök allra íslenskra stúdenta. Stofnfélög LÍS eru Stúdentafélag Háskólans á Akureyri, Stúdentaráð Háskóla Íslands, Nemendafélag Háskólans á Bifröst, Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, Nemendaráð Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra námsmanna erlendis og Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands og var Stúdentafélagi Hólaskóla veitt áheyrnaraðild. Stúdentafélagi Hólaskóla var veitt full aðild á Landsþingi LÍS árið 2015.

Hlutverk samtakanna er að standa vörð um hagsmuni stúdenta hérlendis og hagsmuni íslenskra stúdenta á alþjóðavettvangi og um leið að skapa starfsvettvang fyrir íslensk stúdentafélög og vera þátttakandi í alþjóðlegu hagsmunasamstarfi háskólanema og vinna að samræmingu gæðastarfs í íslenskum háskólum. Samtökin geta í sameiginlegu umboði allra aðildarfélaga farið með samningsumboð og komið fram fyrir hönd þeirra gagnvart stjórnvöldum, fjölmiðlum og öðrum aðilum. 

SHA á 2 fulltrúa í fulltrúaráði LÍS, sem og önnur aðildarfélög samtakanna.