Hækkun skrásetningargjalds: Katla Ósk, hagsmunafulltrúi SHA, skrifar

Katla Ósk, hagsmunafulltrúi SHA, skrifar um hækkun skrásetningargjalds.

Auglýsing: 133. fundur stúdentaráðs

133. fundur Stúdentaráðs SHA verður haldinn 1. apríl næstkomandi. Fundir stúdentaráðs eru almennt ekki opnir öðrum en þeim sem hafa setu, tillögu og áheyrnarrétt skv. samþykktum SHA en öllum er frjálst að senda inn mál til umræðu eða óska eftir því að fá að ávarpa fundinn ásamt því að stúdentar eru hvattir til að kynna sér dagskrárefni hvers fundar.

Ný framkvæmdastjórn kjörin á aðalfundi SHA

Nýtt stúdentaráð og framkvæmdastjórn SHA voru kynnt á aðalfundi félagsins 16. mars 2026. Kosið var í sex manna framkvæmdastjórn í fyrsta sinn samkvæmt nýjum samþykktum félagsins ásamt nýjum hlutverkum gæðafulltrúa, jafnréttisfulltrúa og umhverfisfulltrúa.

Aðalfundur og kosning í embætti framkvæmdastjórnar SHA

mánudaginn kl. 17:00 fer fram aðalfundur Stúdentafélags Háskólans á Akureyri. Klukkan 17:00 í dag, 13. mars, lokaði kjörstjórn fyrir framboð í störf Stúdentafélags Háskólans á Akureyri, nefndir og ráð HA.