29.06.2026
Stúdentaráð SHA samþykkti í vor að fagna því sérstaklega að samfélag stúdenta við Háskólann á Akureyri hefur í haust sitt fertugasta starfsár, m.a. með nýju merki og nýrri heimasíðu.
23.06.2026
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri og Ergi, félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi, stóðu fyrir tveimur viðburðum í tengslum við Hinsegin hátíð Norðurlands Eystra, sem fór fram í júní. Viðburðirnir voru Hinnblástur og Raddir gegn hatri: Námskeið í gagnræðu.
23.06.2026
Margrét Unnur Ólafsdóttir, 3. árs hjúkrunarnemi, hélt erindi á aðalfundi Félags Íslenskra Hjúkrunarfræðinga 19. maí síðastliðinn. Erindið á við okkur öll en þar sem innslag þess tengist sérstaklega málefnum hinsegin fólks þá fengum við að birta það hér í sérstökum tengslum við Hinseginhátið á Norðurlandi Eystra og viðeigandi að það sé gert í júnímánuði sem er einmitt sá mánuður sem hinsegin samfélagið heldur upp á út um allan heim sem mánuð réttindabaráttu hinsegin fólks.
09.06.2026
Vorið 2026 óskaði framkvæmdastjórn SHA eftir aðgangi að öllum lokaprófum sem þreytt voru við Háskólann á Akureyri 2025. Nú styttist í að þau gögn verði afhent og gerð aðgengileg stúdentum. Teljum við því mikilvægt að greiða úr misskilningi sem við höfum orðið vör við að undanförnu.