Yfirlýsing frá FSHA

Félagsmenn við FHA greiddu atkvæði um hvort boða ætti til verkfalls og sögðu 86,6 % þeirra já, en 13,4 % nei. Í tilkynningu frá stjórn félagsins segir að vonast sé til að samningar náist áður en til verkfalls komi. Eftirfarandi er yfirlýsing frá FSHA vegna þessa:

Upplýsingar um yfirvofandi verkfall háskólakennara við HA

Fjöldi stúdenta er að velta fyrir sér ýmsum spurningum í sambandi við yfirvofandi verkfall. Hér verður farið í helstu atriði en ef eitthvað er óljóst eða ef spurningar vakna þá ekki hika við að hafa samband!

Vísindaferð í Já ísland og Nova!!

Já Ísland býður nemendum Háskólans á Akureyri í vísindaferð föstudaginn 21. mars frá klukkan 17:00 - 19:00 í Lionssalnum í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14. Skráning fyrir kl 12:00 21. mars. Nova býður okkur svo í partý frá kl 19:00 - 21:00 á Glerártorgi.

Fulltrúi FSHA í Framkvæmdastjórn LÍS

Fulltrúi FSHA í framkvæmdastjórn LÍS til tveggja ára

Atvinnu- og nýsköpunarhelgin

Ert þú með góða hugmynd? Kynntu þér þetta!!

Fulltrúar nemenda í nefndir og ráð innan HA

Hefur þú áhuga á umhverfismálum, jafnréttismálum, vísindamálum, gæðamálum HA eða jafnvel húsnæðismálum stúdenta á Akureyri? Þá höfum við eitthvað fyrir þig!

Ný stjórn FSHA tekin við

Háskóladagurinn á laugardaginn

Nú um helgina fer fram Háskóladagurinn sem er kynningardagur fyrir alla háskóla landsins. Háskólinn á Akureyri verður að kynna sitt námsframboð á Háskólatorgi í Háskóla Íslands. Af því tilefni var nýr kynningarbæklingur HA að koma út og verður aðgengilegur um helgina. Komdu og kíktu við og sjáðu hvað Háskólinn á Akureyri hefur uppá að bjóða!

Nýtt æðstaráð tekur við

Nýtt æðstaráð Stafnbúa tók við fimmtudaginn 13. febrúar síðastliðinn. Fráfarandi æðstaráð þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári og óskar þeim velfarnaðar á komandi stjórnarári.

Tilboð á Lögin úr teiknimyndunum í Hofi 9. mars

Það er næstum óþarfi að kynna listamennina sem koma að söng og leikdagskránni Lögin úr teiknimyndunum. Valgerður Guðnadóttir, Þór Breiðfjörð og Felix Bergsson eru meðal þekktustu söngvara og leikara þjóðarinnar. Raddir Felix og Valgerðar eru hluti af æsku margra barna þar sem þau hafa sungið og leikið fjöldan allan af Disney-persónum á löngum og glæsilegum ferli. Nemendur Háskólans á Akureyri geta keypt miða með afslætti á 2500 krónur. Það eina sem þið gerið er að hafa samband við miðasölu Hofs í síma 450 1000 og nefna afslátt til Háskólans á Akureyri.