14.09.2013
Háskólinn á Akureyri mun mánudaginn 16. september kl. 14:30 flagga Grænfána fyrstur háskóla hér á landi og með þeim fyrstu í heiminum. Grænfáninn er landsmönnum vel kunnur en flestir leikskólar og margir grunnskólar flagga honum. Á Degi íslenskrar náttúru, 16. september, mun HA taka við fánanum frá Landvernd. Athöfnin hefst kl. 14:30 í Miðborg, anddyri háskólans og eru allir velkomnir.
11.09.2013
Dagana 12.-14. október næstkomandi verður haldin stór og mikil alþjóðleg ráðstefna í Hörpu, sem felur í sér einstakt tækifæri fyrir nemendur og fræðimenn við Háskólann á Akureyri til að mynda ný og spennandi tengsl við alþjóðlega fræðimenn og fulltrúa atvinnulífs og stjórnmála á heimsvísu.
Þeir sem vilja taka þátt í ráðstefnunni gera það sér að kostnaðarlausu. Hér um að ræða alþjóðlega ráðstefnu með þátttakendum víðs vegar að í veröldinni og ráðstefnan felur einnig í sér mikla möguleika til tengslamyndunar.
Skráningarfrestur er til og með 20. september.
09.09.2013
HA-kórinn óskar eftir kórfélögum.
Viltu taka þátt í starfi vetrarins?
Áhugasömum er bent á að mæta á æfingu 11.september næstkomandi kl 16.15.
03.09.2013
Hugleikur Dagsson verður með uppistand í Hofi föstudaginn 6. september. Stúdentar fá 25% afslátt og miðann á 1.500 kr.
Í hádeginu verður Hugleikur í mötuneytinu með stutta tölu og verður miðasala fyrir kvöldið eftir það.
02.09.2013
Í lok nýnemavikunnar var Íslandsklukkunni hringt. Að því loknu blés FSHA til nýnemadagskrár á Hömrum þar sem nýnemarnir voru hrisstir saman og komið af stað inní háskólalífið. Gleðin tók svo öll völd á Pósthúsbarnum um kvöldið þar sem lokum fyrstu vikunnar í skólanum var fagnað.
30.08.2013
Föstudaginn 30. ágúst verður FSHA með dagskrá fyrir nýnema.
29.08.2013
-
29.08.2013
Nýnemakvöld Reka verður fimmtudaginn 29. ágúst á Café Amour á Ráðhústorginu. Mæting er kl. 19:30 en dagskráin byrjar kl. 20:00
Gylltar veigar verða í boði þar sem dagskrá og starf Reka í vetur verður kynnt. Eftir dagskrá Rekar er öllum frjálst að taka þátt í PubQuiz og/eða hlusta á trúbador.
Vonumst til að sjá sem flesta nýnema!
26.08.2013
-
26.08.2013
Nýnemakvöld Magister verður haldið mánudaginn 26.ágúst á efri hæðinni á Kaffi Amour. Við ætlum að byrja fjörið klukkan 20:00 þar sem nýnemar mæta og skella í sig pitsu og bjór.
29.08.2013
-
29.08.2013
Nýnemakvöld Eirar verður haldið á Kaffi Akureyri fimmtudagskvödlið 29 ágúst. Herlegheitin byrja kl. 20:00. Við ætlum að bjóða ykkur upp á afar skemmtilegt happdrætti með flottum vinningum, gæða drykki og gott með því. Við hvetjum alla til að mæta á þetta skemmtilega kvöld og hafa smá gaman áður en skólinn byrjar.
29.08.2013
-
29.08.2013
Nýnemakvöld Stafnbúa hefst klukkan 19.00 fimmtudagskvöldið 29. ágúst og verður haldið á 2. hæð í Borgum. Í boði verða pizza og bjór og ætlum við að hafa skemmtilega leiki til að hrista saman liðið! :)